26.2.2012 | 12:18
Bara tjón ...eða
Hugmyndarfræðin að reikna óinnheimt gjöld sem kostnað í framtíðinni en gera ekki ráð fyrir afleiddum hagnaði er svolítið flatjarðarleg.
Í fyrsta lagi þá gæti aukningin á orkusölunni skilað inn minni "kostnaði", í öðru lagi hefur þetta líklega í för með sér minni hækkanir á afleiddum vörum og atferlum ... líklega fyrirbyggjandi áhrif á annars hækkandi vísitölur og vexti ... ásamt fjölda annarra atriða.
Þetta er svona svipað og átta sig ekki á því að þú notar ekki bara blóðtökur í lækningarskyni eins og gert var á miðöldum. Jafnvel þó svo þú sitjir í stjórn blóðbankans.
Niðurfelling gjalda á orku þýðir betri lífsgæði, aukna framleiðni og aukna neyslu.
Það sem Mörður áttar sig ekki á að það er komið yfir þanmörkin og þú blóðmjólkar ekki kúna eftir hún er fallin í gólfið af blóðleysi.
Það viðhorf að ekki skuli minnka það sem í leikfangakassa þingmanna og ríkisstjórnar kemur verður að skoðast með tilliti til þess hvað afleiddan kostnað og afleiddan hagnað það hefur.
Hvað lækkar til dæmis bensínkostnaður og olíukostnaður framkvæmdarvaldsins við þetta ?
Frumvarpið kostar 13 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Morfeus
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.